Opið hús: 19. mars 2025 kl. 17:30 til 18:00.Opið hús: Sólvallagata 70, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 19. mars 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Bókið skoðun á
[email protected] eða í síma 771-5501
101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Vel staðsetta íbúð á tveimur hæðum á Sólvallagötu. Skóli, leikskóli og öll almenn þjónusta í göngufæri.Lýsing:
Neðri hæð: Stofa/borðstofa, eldhús, gestasalerni.Anddyri með fatahengi og parket á gólfi
Eldhús endurnýjað 2022. Hvít innrétting með efri og neðri skápum flísalagt og lýsing á milli. Innbyggð uppþvottavél, helluborð, vifta og ofn. Rúmgóður eldhúskrókur með eldhúsbekk. Tvennir inngangar eru inn í eldhúsið.
Stofa/borðstofa parketlagt bjart samliggjandi rými. Tveir inngangar eru að stofu frá gangi við stiga og um tvöfalda hurð frá eldhúsi.
Gestabaðherbergi endurnýjað 2017, upphengt salerni, handlaug og skápur undir, gluggi og flísalagt í hólf og gólf.
Efri hæð: Þrjú svefnherbergi, baðherbergi.Stigi úr timbri liggur upp á efri hæð eignarinnar.
Gangur með parketi á gólfi, góðum geymsluskáp og þakglugga.
Hjónaherbergi rúmgott, gott skápapláss og parket á gólfi.
Svefnherbergi með skáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi með skáp og parket á gólfi.
Baðherbergi, baðkar/sturta, gluggi, tengi fyrir þvottavél, góð innrétting og flísalagt gólf og veggir.
Sér
geymsla aðgangur frá porti.
Sameiginlegt
þvottahús aðgangur frá porti.
Sameiginlegt
port bakatil við hús.
2013 Norðurgafl hússins klæddur og hús viðgert og málað að utan sama ár.2017 Gestabaðherbergi endurnýjað.
2017 Neysluvatnslagnir endurnýjaðar og sett varmaskiptakerfi.
2020 Járn og pappi á þaki endurnýjað.
2020 Gler endurnýjað í öllum gluggum efri hæðar.2021 Allt parket íbúðar pússað.
2021 Öll íbúð máluð fyrir utan baðherbergi/gestasnyrtingu. Sameignargangur málaður.
2022 Eldhús endurnýjað ásamt tækjum. Flísalagt í eldhúsi og lagt vatn að ísskáp fyrir klakavél.
2022 Rafmagn yfirfarið, bætt við tenglum eftir þörfum og öryggi í töflu lagað.2022 Þakkgluggar yfirfarnir og þéttir.Góð eign á vinsælum stað í 101 Reykjavík.
Grandinn, miðbærinn, kaffihús og veitingastaðir í næsta nágrenni ásamt Vesturbæjarlaug og Íþróttasvæði KR sem er í göngufæri.Nánari upplýsingar veitir Björg Kristín
[email protected] s: 771-5501 eða Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. í síma 820-8101, netfang
[email protected]. eð
Bókið skoðun á
[email protected].
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 77.900,- með vsk
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Reykjavík fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv.