101 Reykjavík fasteignasala kynnir til sölu eignina Hrísrima 11. Bjarta og rúmgóða 3ja herb. íbúð á góðum stað í Grafarvogi. Stutt í alla þjónustu, skóla og leikskóla. Komið er inn í snyrtilega sameign og gengið upp á aðra hæð.
Forstofurými er rúmgott opið flísalagt rými með skáp.
Eldhús er með eldri innréttingu er hvít, efri skápar, neðri skápar og skúffur ásamt eldavél og tengi fyrir uppþvottavél. Dúkur á gólfi. Borðkrókur við enda innréttingar.
Stofa parketlögð rúmgóð og með glugga er snýr að snýr að nær umhverfi. Útgengi er út á góðar svalir úr stofu. Timburflísar eru á svalagólfi.
Hjónaherbergi parketlagt einkar rúmgott og með skápum en á framhliðar.
Barnaherbergi parketlagt og með skáp.
Baðherbergi flísalagðir veggir, dúkur á gólfi. Sturta, salerni og handklæðaofn. Baðinnrétting hefur verið endurnýjuð og er með neðri og efri skápum og handlaug.
Sér geymsla í kjallara, sameiginlegt þvottahús ásamt hjólageymslu.
2023 Þakkantur og þak endurbætt.
2023 Hús steypuviðgert, viðgerðir á klæðningu og málun.
Góð eign á vinsælum stað í Grafarvoginum.
Nánari upplýsingar veitir Sigþór Reynir Björgvinsson löggiltur fasteignasali, í síma 841 9992, tölvupóstur [email protected].Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501
[email protected] og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101
[email protected]Bókið skoðun á [email protected] eða í síma 841-9992. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 77.900,- með vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv.