101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Góða 3ja herbergja íbúð á Hjarðarhaga 38. Bílskúr 24 fm fylgir eign ásamt herbergi á efstu hæð hússins.
Skólar, leikskólar verslun og háskólasvæði í göngufæri.Komið er inn í snyrtilega sameign og gengið upp á aðra hæð.
Forstofa rúmgott opið parketlagt rými með innbyggðum skáp.
Eldhús efri skápar og neðri skápar og skúffur ásamt eldavél. Flísalagt að hluta milli efri og neðri skápa. Dúkur á gólfi.
Stofa parketlögð rúmgóð og með glugga er snýr að sameiginlegum garði. Gluggakista í stofu þarfnast endurnýjunar.
Borðstofa parketlögð og með útgengi að svölum.
Svefnherbergi parketlagt einkar rúmgott og með innbyggðum skápum.
Baðherbergi flísalagt gólf og veggir. Baðkar/sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Baðinnrétting með neðri skápum og handlaug á borði.
Geymsla undir súð er á efstu hæð hússins fylgir eign.
Sér geymsla í kjallara ásamt sameiginlegu
þvottahúsi.Hjólageymsla er í endabílskúr við innkeyrslu að húsum.
Bílskúr 24 fm er óupphitaður og án vatns. En rafmagn er í bílskúr.
2024 Stigagangur málaður.
2017 Skipt um teppi í stigagangi
2013 Þakkantur endursteyptur og þak endurbætt.
2013 Hús steypuviðgert og viðgerðir á klæðningu, skipt um glugga eftir þörfum.Góð eign á vinsælum stað í vesturbænum.
Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 [email protected] og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 [email protected]
Bókið skoðun á [email protected] eða í síma 771-5501. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 77.900,- með vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv.